23 jan. 2001Leiguflugvél með landsliði Makedóníu og stuðningsmönnum þeirra, alls um 100 manns, lenti á Keflavíkurflugvelli í hádeginu. Leikmenn landsliðsins og föruneyti þeiru er nú á leið á hótel sitt í Reykjavík, en stuðningsmennirnir, sem munu vera um 60 talsins, bíða í Keflavík. Samkvæmt heimildum KKÍ hafa stjórnvöld ákveðið að veita stuðningsmönnunum vegabréfsáritun sem gilda mun í tvo sólarhringa - þeim sem á annað borð uppfylla skilyrði til þess að fá vegabréfsáritun. Landsleikur Íslands og Makedóníu verður í Laugardalshöll á morgun kl. 18:00. Nánari upplýsingar um liðin verða gefnar út á blaðamannafundi sem hefst kl. 15:00 í dag.