19 jan. 2001FIBA hefur tilnefnt Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóra KKÍ sem eftirlitsmann FIBA á tveimur leikjum í Evrópukeppnun félagsliða nú í lok janúar. Þetta eru fyrstu verkefnin sem Pétur Hrafn fær frá FIBA í vetur. Leikirnir sem Pétur Hrafn verður eftirlitsmaður á eru leikur Elan Chalon og FC Porto frá Portúgal í Evrópukeppni bikarhafa í Chalon 30. janúar. Daginn eftir verður Pétur að störfum í sinnepsborginni Dijon þar sem heimamenn í JDA Dijon munu mæta Unicaja frá Spáni í Evrópukeppni félagsliða. Pétur mun halda til Frakklands beint frá München þar sem hann situr aukaþing FIBA 27.-28. janúar.