16 jan. 2001Einum leik úr 14. umferð Epson-deildarinnar sem vera átti í kvöld hefur verið frestað, en það er leikur KFÍ og Skallagríms. Ekki var flugfært til Ísafjarðar í dag. Leikurinn hefur verið settur á nk. sunnudag kl. 20:00. Aðrir leikir í 14. umferð Epson-deildarinnar sem eru á dagskrá í kvöld eru þessir: Valur - Tindastóll, UMFG - ÍR, Haukar - Þór Ak., KR - Hamar og UMFN - Keflavík.