28 des. 2000Íslenska U16 landsliðið tapaði fyrir því finnska í gærkvöldi með 61 stigi gegn 71 eftir að hafa verið yfir mestan hluta leiksins. Staðan í hálfleik var 31-26, Íslandi í vil. Leikurinn var jafn og nokkuð vel spilaður af báðum liðum fyrstu 3 leikhlutana, en þó var hittnin ekki góð. Ísland náði mest 6 stiga forystu í þriðja leikhluta, en Finnar héldu jöfnu i leikhlutanum og stadan eftir 3. leikhluta var því 44-39. Íslendingar héldu forystunni þar til um 7 mínútur voru eftir af leiknum en þá fór að síga á ógæfuhliðina og þreyta fór að sína sig hjá Íslendingunum. Varnarleikurinn hrundi og Finnar náðu mörgum sóknarfráköstum og tókst að ná forystunni og gott betur, því þeir unnu 4 leikhlutann 17-32. Bestu menn Íslands i þessum leik voru Óli, Þorleifur, Sæar og Fannar, en Fannar spilaði nánast allan leikinn og var orðinn ansi þreyttur í lok leiksins. Stigin skoruðu: Þorleifur 18, Óli 17, Fannar 10, Sævar 9, Pálmar 4, Jón Hrafn 2, Kristinn 1. Næsti leikur er í kvöld kl. 17:00 að íslenskum tíma a móti Norðmönnum, sem töpuðu fyrir Dönum í gær með 84 stigum gegn 112. (Á síðu mótsins kom fram að Norðmenn hefðu unnið sigur í leiknum og er það hér með leiðrétt).