5 des. 2000Dregið hefur verið í forkeppni að 8-liða úslitum í bikarkeppni KKÍ&Doritos kvenna. B-lið Keflavíkur, sem skipað er eldri leikmönnum (drottningum) mætir Tindastóli á Sauðárkróki og ÍR/Breiðablik fær Hrunamenn í heimsókn. Þau félög sem fara beint í 8-liða úrslit eru Keflavík a, KR, ÍS, KFÍ, UMFG og Haukar. Leikirnir í forkeppninni verða leiknir fyrir jólafrí.