24 nóv. 2000A-landsliðið hélt til Belgíu snemma í gærmorgun. Flogið var til Brussel með viðkomu í Kaupmannahöfn. Menn fengu því ekki mikinn tíma til að jafna sig eftir Úkraínuleikinn. Þessa stundina er liðið á tveggja tíma æfingu í höllinni í Roeselare þar sem leikið verður á morgun. Létt æfing var í gær strax eftir komuna til Belgíu, en þessa stundina stendur yfir hörkuæfing þar sem vel er tekið á því. Allir strákarnir eru heilir og klárir í slaginn, en leikurinn á morgun hefst kl. 18:30 að íslenskum tíma.