16 nóv. 2000Friðrik Erlendur Stefánsson miðherji íslenska landsliðsins kemur til lið við landsliðshópinn í dag, frá Finnlandi þar sem hann hefur leikið að undanförnu. Helgi Jónas Guðfinnsson kemur til landsins á sunnudag, en félag hans Ieper á leik í belgísku deildinni á laugardaginn. Landsliðið kom saman til æfinga í hádeginu í gær og í dag er önnur hádegisæfing.