19 okt. 2000Bikarmeistarar UMFG drógust gegn Ármanni/Þrótti í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla, en drátturinn fór fram síðdegis í dag. Bikarmeistararnir hefja því titilvörn sína á sama stað og þeir unnu titilinn, en Ármann/Þróttur leikur heimaleiki sína í Laugardalshöll. Þá lentu KFÍ og UMFN saman, en önnur lið úr Epson-deildinni lentu á móti neðrideildarliðum. Í forkeppni að 32-liða úrslitum lentu eftirtalin félög saman: Árvakur - Keflavík b, Reynir H. - USVH, KR b - Breiðablik b. Í 32-liða úrslitum drógust eftirtalin félög saman: Örninn - ÍA ÍS - Haukar Hrönn - Þór Ak. Ármann/Þróttur - UMFG Reynir S. - Tindastóll ÍR - USVH/Reynir H. Valur - KR b/Breiðablik b Dalvík - Hamar KFÍ - UMFN Léttir - Smári HK - Stjarnan Skallagrímur - Árvakur/Keflavík b ÍG - Þór Þ. Selfoss - Snæfell Breiðablik - Keflavík ÍV - KR Leikirnir í forkeppninni fara væntanlega fram fimmtudaginn 26. október og leikirnir í 32-liða úrslitunum verða helgina 28.-29. október. Það félag sem nefnt er á undan á heimaleik. Þó er ekki ljóst hvort ÍR og Skallagrímur fá heimaleik, en það fer eftir úrslitum í leikjunum í forkeppninni. Neðrideildarlið fá heimaleik, en utandeildarlið geta ekki fengið heimaleik. Nánari tímasetningar leikjanna verður kynntar fljótlega.