7 okt. 2000Þórsarar frá Akureyri unnu síðari leikinn gegn KFÍ á Ísafirði í dag 75-63 og komust þar með áfram í Kjörísbikarnum þar sem þeir skoruðu 6 stigum meira en KFÍ samanlagt. Keflavík vann nauman sigur á ÍR í Keflavík, 84-81 og er komið áfram. Haukar eru komnir áfram þrátt fyrir tap gegn Val á Ásvöllum, 84-89. Haukar áttu 21 stig til góða frá fyrri leiknum. Hamarsmönnum varð ekki skotaskold úr því að komast áfram þrátt fyrir 6 stiga tap í Borgarnesi á fimmtudag. Hvergerðingarnir unnu Skallagrím með 13 stig mun í dag, 90-77, og komust því áfram með 7 stiga mun. Einn leikur var í fyrstu deild karla í dag. Ármann/Þróttur komst í efsta sæti deildarinnar með 77-62 sigri á ÍV í Eyjum.