12 jan. 2000Stjörnuleikur KKÍ&SPREITE og ESSÓ verður haldinn á laugardaginn kemur kl. 16:00 í íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði. Þjálfarar liðanna, þeir Friðrik Ingi Rúnarsson og Ingi Þór Steinþórsson völdu leikmenn í lið sín í dag. Friðrik Ingi valdi eftirtalda leikmenn í SPRITE-liðið: Brenton Birmingham UMFG, Keith Veney UMFN, Maurice Spillers Þór Ak. Örlygur Sturluson UMFN, Fannar Ólafsson Keflavík, Gunnar Einarsson Keflavík, Páll Kristinsson UMFN, Friðrik Ragnarsson UMFN, Hjörtur Harðarson Keflavík, Hlynur Bæringsson Skallagrím,Guðmundur Bragason Haukum, Pétur Guðmundsson UMFG. Ingi Þór valdi eftirtalda leikmenn í ESSÓ-lið sitt: Shawn Myers Tindastól, Torrey John Skallagrím, Kim Lewis Snæfelli, Ólafur Ormsson KR, Teitur Örlygsson UMFN, Óðinn Ásgeirsson Þór Ak. Bjarni Magnússon UMFG, Kristinn Friðriksson Tindastól, Steinar Kaldal KR, Ægir Jónsson ÍA, Hjalti Pálsson Hamri, Svavar Birgisson Tindastóli. Einnig verður troðslukeppni og þriggja stiga skotkeppni eins og venja er og verður tilkynnt síðar hvaða leikmenn taka þátt í þeim keppnum. Frítt er inn á leikinn.