22 nóv. 1999Leifur Garðarsson körfuknattleiksdómari hefur fengið tilnefningu frá FIBA að dæma tvo leiki í Finnlandi í næsta mánuði. Um er að ræða leik Honka og Avtodor (Rússlandi) og ToPo og Radnicki Jugopetrol frá Júgóslavíu. Báðir leikirnir eru í Evrópukeppni bikarhafa. Sem kunnugt er leikur Falur Harðarson landsliðsmaður með liði ToPo. Leifur er annar íslenski dómarinn sem dæmir hjá ToPo í vetur, því Kristinn Óskarsson var á ferð í Finnlandi fyrr í haust. Þá er stutt síðan Leifur dæmdi hjá Herbert Arnarsyni og félögum í Groningen í Hollandi.