15 nóv. 1999Tindastóll batt enda á sigurgöngu Keflavíkinga í Eggjabikarnum í gær. Norðanmenn lögðu suðurnesjamenn 80-69, en fyrir leikinn höfðu Keflavíkingar sigrað í 23 leikjum í röð í keppninni. Á laugardag unnu þeir Grindvíkinga naumlega 64-63 í undanúrslitum, en Tindastólsmenn lögðu Njarðvíkinga 76-62. Þar með hefur Tindastóll unnið sinn fyrsta sigur í meiriháttar móti á vegum KKÍ.