16 sep. 1999Sameiginlegt lið Reykjanesbæjar, ÍRB, gjörsigraði London Leopards 111-75 í forkeppni Korac-cup, Evrópukeppni félagsliða í Keflavík í gærkvöld. Reyknesingar léku á als oddi og gestirnir áttu ekkert svar við stórleik þeirra. Allir tíu leikmenn ÍRB áttu góðan leik og sama var hverjir þeirra voru á leikvelli, munurinn jókst með hverri mínútinni sem leið. Þegar upp var staðið skildu 36 stig liðin að, sem ætti að duga sem veganesti í síðari leikinn í London þriðjudaginn 21. september. Stig ÍRB: Purnell Perry 26, Hermann Hauksson 18, Guðjón Skúlason 14, Teitur Örlygsson 13, Fannar Ólafsson 10, Hjörtur Harðarson 10, Gunnar Einarsson 9, Chianti Roberts 6, Friðrik Ragnarsson 5 og Friðrik Stefánsson 4. Reyknesingar hittu mjög vel í leiknum 69% úr tveggja stiga gegn 42% gestanna og 58% úr þriggja stiga gegn 40%. Þriggja stiga körfurnar voru líka mun fleiri, eða 15 gegn 4 hjá London Leopards. Gestirnir hittu betur úr vítum 85% gegn 64% og tóku fleiri fráköst 33 gegn 30. Þeir töpuðu 18 boltum gegn 13 hjá ÍRB. Frákastahæstur í liði ÍRB var Purnell Perry með 11 fráköst.