
| S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
Hér eru upplýsingar og gögn til að sækja um leikheimild fyrir erlenda leikmenn. Það sem þarf að huga að er að umsókn um LOC og sjúkratryggingu getur tekið 1-2 daga að undirbúa. Félögin sjálf sjá um atvinnu- og dvalarleyfisumsókn til UTL.
Það sem þarf að uppfylla til að leikmaður fái leikheimild hjá KKÍ er eftirfarandi:
· KKÍ umsókn Upplýsingar til að hægt sé að sækja um Letter of Clearance.
· FIBA umsókn (pdf) Skráning leikmannsins hjá FIBA Europe.
· FIBA umsókn (word)
· Afrit af vegabréfi Helst skannað inn og sent í tölvupósti.
· Sjúkratrygging Staðfesting á sjúkrakostnaðartryggingu.
· Staða hjá KKÍ Félag þarf að vera skuldlaust við KKÍ til að fá leikheimild.
· Self Declearation (pdf)
· Self Declearation (word)
Sé leikmaður að koma beint úr skóla í Bandaríkjunum er nóg að fylla út þetta skjal fyrir leikmanninn og skila. Þá þarf ekki að útvega LOC.
Að lokum er gott að senda afrit af samningi leikmanns til geymslu á KKÍ komi upp ágreiningsmál og svo þarf
félag að vera skuldlaust við KKÍ til að leikmaður fái leikheimild samkvæmt reglugerð KKÍ.
Vert er að taka fram að gott getur verið að sækja um LOC í tíma, því KKÍ sækir um það til viðkomandi sérsambands í því landi þar sem leikmaður lék síðast og getur tekið tíma, allt eftir því hve fjótt viðkomandi samband afgreiðir málið og fær svar frá fyrra félagi um að leikmanni sé heimilt að yfirgefa það.
Umsóknarferli um dvalarleyfi og annað - Eyðublöð og leiðbeiningar
Leiðbeiningar um grunnferli þess að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi leikmanns hjá UTL er að finna hér fyrir neðan en KKÍ setti saman leiðbeiningar sem fara yfir ferlið og hvaða skref þarf að fara í gegnum:
· Frá UTL varðandi erlenda leikmenn og undanþágur (lesið vel)
Þetta er það sem forráðamenn þurfa að gera síðan - og í þessari röð:
1) Senda tölvupóst á leikmanninn (sjá texta hér að neðan) með nákvæmum leiðbeiningum og setja í viðhengi allt sem þarf að fylla út.
2) Þegar leikmaðurinn hefur skannað gögnin - fara yfir þau og vera viss um að undirskriftin sé allsstaðar - það er mikilvægast. - ef ekki, biðja hann um að leiðrétta það áður en hann sendir allt í hraðpósti/express mail - erfitt að leiðrétta eftir á.
3) Senda til tryggingafélagsins skannað eintak af tryggingaumsókn og vegabréfi - þá verður tryggingin tilbúin þegar frumrit gagna koma til landsins (tryggingafélög þurfa ekki frumrit)
4) Þegar frumritin eru komin - takið þá ljósrit af öllu sem tengist FBI - sendið síðan FBI frumritin til FBI til að fá sakavottorðið sent til Íslands - sjá nánar hér: http://www.fbi.gov/about-us/cjis/background-checks/background_checks Það er best að forráðamenn gera þetta þar sem leikmenn klúðra þessu oftast – láta senda FBI sakavottorð beint til Utlendingastofnun – The Directorate of Immigration, Skogarhlid 6, 105 Reykjavik, Iceland.
5) Fara með frumrit af öllum gögnum nema FBI til útlendingastofnunar - setja ljósrit af FBI. Gögnin sem þarf að skila eru:
1) Dvalarleyfi, 2) Atvinnuleyfi, 3) Ráðningasamningur (muna að nefna lífeyrissjóð - annars mun VMST synja umsókninni), 4) Ljósrit af vegabréfi, 5) Afrit af tryggingaskírteini, 6) Húsnæðisvottorð (þið reddið þessu - muna að eigandi húsnæðis verður að skrifa undir), 7) Framlagningu frumrits greiðslukvittunar og ljósrits af umsóknarformi að þeir hafi sótt um staðfest sakavottorð til FBI, 8) Umboð (aðeins sá sem er nefndur á umboðið getur fengið upplýsingar frá útlendingastofnun), 6) Þegar útlendingurinn er kominn með leyfi, fara með hann í myndatöku til sýslumanns eða útlendingastofnunar.
Athugið að sum eyðublöð er hægt að fylla út í tölvunni:
· Eyðublöð og umsóknir fyrir erlenda leikmenn
· Umsókn tryggingar hjá Sjóvá
· Umsókn tryggingar hjá VÍS
· Umsókn tryggingar hjá TM
Dæmi um texta til leikmanns:
Hello x
My name is xxx and I'm helping the xxx team getting a residence and workpermit for you in Iceland. Attached are the application form that you have to fill out. Please do this no later than today or tomorrow. We are trying our best to have you here in Iceland as soon as possible.
1) Print everything out and fill out with a BLUE PEN and sign EVERYTHING.
2) Get your fingerprints taken at a police station
3) Take a scan copy of your passport
4) Scan everything and e-mail me.
3) Than mail everything in ORIGINAL to the following address via EXPRESS mail, use for example USP, DHL or any other express mail. Do not use the standard US postal office.
The team will refund you for the FBI criminal record check and the express mail cost.
The sooner you can have all of this ready, the sooner the permit will be ready. It should take about 2-4 days from the time I receive the papers from you.
Best regards, x